3. fundur
velferðarnefndar á 152. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 17. desember 2021 kl. 13:00


Mætt:

Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) formaður, kl. 13:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF) 2. varaformaður, kl. 13:00
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 13:00
Guðrún Hafsteinsdóttir (GHaf), kl. 13:00
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir (HHH), kl. 13:00
Halldóra Mogensen (HallM), kl. 13:00
Jódís Skúladóttir (JSkúl), kl. 13:00
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 13:00

Nefndarritari: Kolbrún Birna Árdal

Gestir tóku þátt í fundinum með fjarfundarbúnaði.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 13:00
Fundargerð 2. fundar samþykkt.

2) 188. mál - Barna- og fjölskyldustofa og Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála Kl. 13:00
Á fund nefndarinnar mættu Anna Tryggvadóttir, Erna Kristín Blöndal og Gissur Pétursson frá félagsmálaráðuneyti. Fóru þau yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 13. mál - atvinnulýðræði Kl. 13:30
Ákveðið var að senda málið til umsagnar með fresti til 10. janúar. Þá var ákveðið að Jódís Skúladóttir verði framsögumaður málsins.

4) 138. mál - rannsóknir á nýgengi krabbameina á Suðurnesjum Kl. 13:30
Ákveðið var að senda málið til umsagnar með fresti til 10. janúar. Þá var ákveðið að Ásmundur Friðriksson verði framsögumaður málsins.

5) Önnur mál Kl. 13:35
Nefndin ræddi starfið framundan.

Fundi slitið kl. 13:45