40. fundur
velferðarnefndar á 152. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 27. maí 2022 kl. 09:10


Mætt:

Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) formaður, kl. 09:10
Oddný G. Harðardóttir (OH) 1. varaformaður, kl. 09:10
Ásmundur Friðriksson (ÁsF) 2. varaformaður, kl. 09:10
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 10:05
Guðrún Hafsteinsdóttir (GHaf), kl. 09:10
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir (HHH), kl. 09:10
Jódís Skúladóttir (JSkúl), kl. 09:10
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 09:10
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (ÞorbG), kl. 09:10

Halldóra Mogensen boðaði forföll.
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir tók þátt í fundinum með fjarfundabúnaði til kl. 9:53.

Nefndarritari: Kolbrún Birna Árdal

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:10
Fundargerð 38. fundar samþykkt.

2) 589. mál - starfskjaralög Kl. 09:10
Á fund nefndarinnar mætti Bjarnheiður Gautadóttir frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu. Fór hún yfir málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

3) 6. mál - uppbygging félagslegs húsnæðis Kl. 09:55
Nefndin ræddi málið.

4) 590. mál - aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum Kl. 10:00
Nefndin ræddi málið.

5) 498. mál - sóttvarnalög Kl. 10:10
Á fund nefndarinnar mættu Guðlín Steinsdóttir og Sigurður Kári Árnason frá heilbrigðisráðuneytinu. Fóru þau yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

6) 572. mál - húsaleigulög Kl. 11:00
Á fund nefndarinnar mættu Ragnhildur Hjaltadóttir og Lísa Margrét Sigurðardóttir frá innviðaráðuneytinu. Fóru þær yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

7) 433. mál - heilbrigðisþjónusta Kl. 11:38
Nefndin ræddi málið.

8) Önnur mál Kl. 11:55
Nefndin ræddi starfið framundan.

Fundi slitið kl. 12:00