15. fundur
velferðarnefndar á 153. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 21. nóvember 2022 kl. 09:15


Mætt:

Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) formaður, kl. 09:15
Oddný G. Harðardóttir (OH) 1. varaformaður, kl. 09:15
Guðbrandur Einarsson (GE), kl. 09:15
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 09:15
Guðrún Hafsteinsdóttir (GHaf), kl. 09:15
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir (HHH), kl. 09:15
Halldóra Mogensen (HallM), kl. 09:21
Jódís Skúladóttir (JSkúl), kl. 09:15
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 09:15

Ásmundur Friðriksson boðaði forföll.

Nefndarritari: Kolbrún Birna Árdal

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:15
Fundargerðir 13. og 14. funda samþykktar.

2) 435. mál - félagsleg aðstoð Kl. 09:15
Á fund nefndarinnar mættu Ágúst Þór Sigurðsson og Klara Briem frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu. Fóru þau yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.
Ákveðið var að senda málið til umsagnar með tveggja vikna umsagnarfresti og að Jódís Skúladóttir verði framsögumaður málsins.

3) 42. mál - útboð á rekstri heilsugæslustöðvar á Akureyri Kl. 09:47
Ákveðið var að senda málið til umsagnar með tveggja vikna umsagnarfresti og að Guðrún Hafsteinsdóttir verði framsögumaður málsins.

4) Greinargerð um meðferðarheimilið í Varpholti og á Laugalandi 1997-2007 Kl. 09:50
Nefndin ræddi málið.

5) Önnur mál Kl. 10:00
Nefndin ræddi starfið framundan.

Fundi slitið kl. 10:00