17. fundur
velferðarnefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 23. nóvember 2015 kl. 09:33


Mættir:

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (SII) formaður, kl. 09:33
Páll Valur Björnsson (PVB) 2. varaformaður, kl. 09:33
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:33
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir (ÓÞ), kl. 09:34
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 09:43
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ) fyrir Steingrím J. Sigfússon (SJS), kl. 09:33
Unnur Brá Konráðsdóttir (UBK), kl. 09:33

Elsa Lára Arnardóttir og Ragnheiður Ríkharðsdóttir boðuðu forföll. Páll Valur Björnsson og Ásmundur Friðriksson viku af fundi kl. 10:50.

Nefndarritari: Gunnlaugur Helgason

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:33
Fundargerðir 15. og 16. fundar voru samþykktar.

2) Sumardvalarheimili fyrir fatlað fólk. Kl. 09:33
Á fund nefndarinnar komu Ingibjörg Broddadóttir og Rún Knútsdóttir frá velferðarráðuneyti og Árni Múli Jónasson, Bryndís Snæbjörnsdóttir og Friðrik Sigurðsson frá Landssamtökunum Þroskahjálp.

3) Samstarfsverkefni um notendastýrða persónulega aðstoð. Kl. 10:08
Á fund nefndarinnar komu Gyða Hjartardóttir og Þór G. Þórarinsson frá verkefnisstjórn um samstarfsverkefni um notendastýrða persónulega aðstoð.

4) Önnur mál Kl. 10:49
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:58