37. fundur
velferðarnefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í færeyska herberginu, fimmtudaginn 4. febrúar 2016 kl. 13:11


Mættir:

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (SII) formaður, kl. 13:11
Elsa Lára Arnardóttir (ELA) 1. varaformaður, kl. 13:11
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 13:11
Brynhildur Pétursdóttir (BP) fyrir Pál Val Björnsson (PVB), kl. 13:11
Ragnheiður Ríkharðsdóttir (RR), kl. 13:11
Steingrímur J. Sigfússon (SJS), kl. 13:11
Unnur Brá Konráðsdóttir (UBK), kl. 13:14

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir og Silja Dögg Gunnarsdóttir voru fjarverandi.

Nefndarritari: Gunnlaugur Helgason

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 13:11
Funargerð 36. fundar var samþykkt.

2) Önnur mál Kl. 13:12
Ákveðið var að senda tillögu til þingsályktunar um sólarhringsmeðferð í öndunarvél á heimili sjúklinga til umsagnar með tveggja vikna fresti. Ákveðið var að Steingrímur J. Sigfússon yrði framsögumaður málsins.

Ákveðið var að senda tillögu til þingsályktunar um embætti umboðsmanns aldraðra til umsagnar með tveggja vikna fresti. Ákveðið var að Ásmundur Friðriksson yrði framsögumaður málsins.

Ákveðið var að senda frumvarp til laga um breytingu á lögum um 40 stunda vinnuviku, nr. 88/1971, með síðari breytingum, til umsagnar með tveggja vikna fresti. Ákveðið var að Sigríður Ingibjörg Ingadóttir yrði framsögumaður málsins.

3) 370. mál - húsnæðissamvinnufélög Kl. 13:14
Nefndin ræddi um málið.

Fundi slitið kl. 14:00