63. fundur
velferðarnefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 2. maí 2016 kl. 09:31


Mættir:

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (SII) formaður, kl. 09:31
Elsa Lára Arnardóttir (ELA) 1. varaformaður, kl. 09:31
Páll Valur Björnsson (PVB) 2. varaformaður, kl. 09:31
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:31
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 09:31
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir (ÓÞ), kl. 09:31
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 09:33
Steingrímur J. Sigfússon (SJS), kl. 09:31
Unnur Brá Konráðsdóttir (UBK), kl. 09:31

Ragnheiður Ríkharðsdóttir var fjarverandi. Helgi Hrafn Gunnarsson vék af fundi kl. 10:54.

Nefndarritari: Gunnlaugur Helgason

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:31
Fundargerð 62. fundar var samþykkt.

2) 435. mál - almennar íbúðir Kl. 09:34
Nefndin fékk á sinn fund Áslaugu Árnadóttur og Rún Knútsdóttur frá velferðarráðuneyti, Gylfa Arnbjörnsson og Magnús M. Norðdahl frá Alþýðusambandi Íslands, Hannes Sigurðsson frá Samtökum atvinnulífsins og Guðjón Bragason og Tryggva Þórhallsson frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

3) Önnur mál Kl. 11:11
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:11