4. fundur
velferðarnefndar á 148. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 20. desember 2017 kl. 14:30


Mættir:

Halldóra Mogensen (HallM) formaður, kl. 14:30
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn) 1. varaformaður, kl. 14:30
Ásmundur Friðriksson (ÁsF) 2. varaformaður, kl. 14:30
Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 14:30
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 14:30
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 14:30

Andrés Ingi Jónsson, Anna Kolbrún Árnadóttir og Vilhjálmur Árnason voru fjarverandi sökum annarra þingstarfa.

Nefndarritari: Kolbrún Birna Árdal

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 14:30
Fundargerð 3. fundar samþykkt.

2) 24. mál - fæðingar- og foreldraorlof Kl. 14:30
Ákveðið var að senda málið til umsagnar með fjögurra vikna umsagnarfresti.

3) 43. mál - bygging 5.000 leiguíbúða Kl. 14:30
Ákveðið var að senda málið til umsagnar með fjögurra vikna umsagnarfresti.

4) Önnur mál Kl. 14:45
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 14:45