20. fundur
velferðarnefndar á 148. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 12. mars 2018 kl. 09:00


Mættir:

Halldóra Mogensen (HallM) formaður, kl. 09:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF) 2. varaformaður, kl. 09:20
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 09:00
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 09:00
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 09:00
María Hjálmarsdóttir (MH) fyrir Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 09:00
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ) fyrir Andrés Inga Jónsson (AIJ), kl. 09:00
Una Hildardóttir (UnaH) fyrir Ólaf Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 09:00
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:00

Halla Signý Kristjánsdóttir vék af fundi kl. 11:45.

Nefndarritari: Kolbrún Birna Árdal

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Fundargerð 19. fundar samþykkt.

2) 293. mál - bann við tilteknum frammistöðubætandi efnum og lyfjum Kl. 09:00
Ákveðið var að senda málið til umsagnar til 9. apríl nk.

3) 346. mál - húsnæðissamvinnufélög Kl. 09:00
Ákveðið var að senda málið til umsagnar til 9. apríl nk. Þá var ákveðið að Halla Signý Kristjánsdóttir verði framsögumaður málsins.

4) 27. mál - félagsþjónusta sveitarfélaga Kl. 09:10
Nefndin ræddi málið.

5) 26. mál - þjónusta við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir Kl. 09:10
Nefndin ræddi málið.

6) Geðheilbrigðismál Kl. 10:30
Á fund nefndarinnar mættu Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra, Elín Garðarsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra, og Elsa Friðfinnsdóttir og Ingibjörg Sveinsdóttir frá velferðarráðuneytinu. Fóru þau yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

7) 24. mál - fæðingar- og foreldraorlof Kl. 11:55
Dagskrárlið frestað.

8) 51. mál - almannatryggingar Kl. 11:55
Dagskrárlið frestað.

9) Önnur mál Kl. 12:00
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 12:00