28. fundur
velferðarnefndar á 148. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 16. apríl 2018 kl. 09:30


Mættir:

Halldóra Mogensen (HallM) formaður, kl. 09:30
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn) 1. varaformaður, kl. 09:30
Ásmundur Friðriksson (ÁsF) 2. varaformaður, kl. 09:30
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 09:30
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 09:30
Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 09:30
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 09:30
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 09:30
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:30

Nefndarritari: Kolbrún Birna Árdal

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:30
Dagskrárlið frestað.

2) 293. mál - bann við tilteknum frammistöðubætandi efnum og lyfjum Kl. 09:30
Á fund nefndarinnar mættu Líney Rut Halldórsdóttir, Davíð Rúrik Ólafsson og Birgir Sverrisson frá Íþrótta- og ólympíusambandi Íslands, Rúna Hauksdóttir Hvannberg og Sindri Kristjánsson frá Lyfjastofnun, Magnús Jóhannsson og Jón Pétur Einarsson frá Landlæknisembættinu og Helga Sif Friðjónsdóttir frá Frú Ragnheiði. Fóru þau yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) Framkvæmdaákvörðun (ESB) 2016/786 um málsmeðferð varðandi stofnun og rekstur óháðrar ráðgjafanefndar til að aðstoða aðildarríkin og framkvæmdastjórnina við að ákvarða hvort tóbaksvörur hafi einkennandi bragð Kl. 10:30
Nefndin ræddi málið.

4) Framkvæmdaákvörðun (ESB) 2016/586 um tæknistaðla fyrir áfyllingarbúnað rafsígaretta Kl. 10:30
Nefndin ræddi málið.

5) Framkvæmdaákvörðun (ESB) 2015/2186 um snið til að leggja fram upplýsingar um tóbaksvörur og gera þær aðgengilegar Kl. 10:30
Nefndin ræddi málið.

6) Framkvæmdaákvörðun (ESB) 2015/2183 um sameiginlegt snið fyrir tilkynningu um rafsígarettur og áfyllingarílát Kl. 10:30
Nefndin ræddi málið.

7) Framkvæmdaákvörðun (ESB) 2016/787 um forgangsskrá yfir aukaefni í vindlingum og vafningstóbaki sem falla undir auknar kvaðir um skýrslugjöf Kl. 10:30
Nefndin ræddi málið.

8) Reglugerð (ESB) 2016/589 um vinnumiðlunarnet Evrópu (EURES-netið), aðgang launafólks að þjónustu vegna hreyfanleika og frekari samþættingu vinnumarkaða, og breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 492/2011 og (ESB) nr. 1296/2013 Kl. 10:45
Nefndin ræddi málið.

9) Önnur mál Kl. 11:00
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:00