24. fundur
velferðarnefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 15. janúar 2019 kl. 13:00


Mættir:

Halldóra Mogensen (HallM) formaður, kl. 13:00
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn) 1. varaformaður, kl. 13:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF) 2. varaformaður, kl. 13:00
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 13:03
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 13:09
Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 13:00
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 13:00
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 13:00
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 13:00
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 13:06

Anna Kolbrún Árnadóttir og Vilhjálmur Árnason véku af fundi kl. 16:05.

Nefndarritari: Arnar Kári Axelsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 13:00
Dagskrárlið frestað.

2) Ábending umboðsmanns Alþingis um meinbugi á lögum um almannatryggingar, útreikningur á búsetutíma varðandi örorkulífeyri Kl. 13:00
Á fund nefndarinnar komu Maren Albertsdóttir og Sigurður Kári Árnason frá umboðsmanni Alþingis. Kynntu þau málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.
Þá komu á fund nefndarinnar Þuríður Harpa Sigurðardóttir, Aðalsteinn Sigurðsson, Sigríður Hanna Ingólfsdóttir og Daníel Isebarn Ágústsson frá Öryrkjabandalagi Íslands. Fjölluðu þau um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.
Einnig komu á fund nefndarinnar Sigríður Lillý Baldursdóttir, Anna Elísabet Sæmundsdóttir og Ragna Haraldsdóttir frá Tryggingastofnun ríkisins. Fjölluðu þær um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) Sjúkratryggingar, fæðingarþjónusta Kl. 14:35
Á fund nefndarinnar mættu Elsa B. Friðfinnsdóttir, Guðlín Steinsdóttir og Guðlaug Einarsdóttir frá heilbrigðisráðuneytinu. Fjölluðu þær um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) 393. mál - þungunarrof Kl. 15:15
Á fund nefndarinnar mættu Áslaug Einarsdóttir og Þórunn Oddný Steinsdóttir frá heilbrigðisráðuneytinu. Fjölluðu þær um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

5) Önnur mál Kl. 16:15
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 16:15