39. fundur
velferðarnefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 13. mars 2019 kl. 09:00


Mættir:

Halldóra Mogensen (HallM) formaður, kl. 09:00
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn) 1. varaformaður, kl. 09:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF) 2. varaformaður, kl. 09:15
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 09:00
Gísli Garðarsson (GGarð) fyrir Andrés Inga Jónsson (AIJ), kl. 09:00
Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 09:00
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 09:00
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 09:00
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:00

Nefndarritari: Arnar Kári Axelsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Dagskrárlið frestað.

2) 393. mál - þungunarrof Kl. 09:00
Á fund nefndarinnar mættu Margrét Steinarsdóttir frá Mannréttindaskrifstofu Íslands, Halldóra Gunnarsdóttir frá mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu Reykjavíkurborgar og Ástríður Stefánsdóttir og Vilhjálmur Árnason frá siðfræðistofnun Háskóla Íslands. Fjölluðu þau um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 509. mál - heilbrigðisstefna til ársins 2030 Kl. 10:35
Á fund nefndarinnar mættu Reynir Arngrímsson frá Læknafélagi Íslands og Þórarinn Guðnason frá Læknafélagi Reykjavíkur. Fjölluðu þeir um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) 24. mál - almannatryggingar Kl. 11:20
Nefndin fjallaði um málið.

5) 530. mál - breyting á ýmsum lögum til innleiðingar á tilskipun (ESB) 2015/1794 Kl. 11:25
Ákveðið var að Ásmundur Friðriksson verði framsögumaður málsins.

6) 257. mál - fæðingar- og foreldraorlof Kl. 11:25
Ákveðið var að Ásmundur Friðriksson verði framsögumaður málsins.

7) Önnur mál Kl. 11:30
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:30