21. fundur
velferðarnefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 27. nóvember 2019 kl. 09:00


Mættir:

Helga Vala Helgadóttir (HVH) formaður, kl. 09:00
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn) 1. varaformaður, kl. 09:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF) 2. varaformaður, kl. 09:00
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 09:00
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 09:15
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 09:00
Halldóra Mogensen (HallM), kl. 09:05
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:00
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 09:00
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:00

Helga Vala Helgadóttir vék af fundi kl. 09:10 vegna annarra þingstarfa. Tók þá Ólafur Þór Gunnarsson við fundarstjórn.

Nefndarritari: Arnar Kári Axelsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Frestað.

2) 393. mál - fæðingar- og foreldraorlof Kl. 09:00
Ákveðið var að senda málið til umsagnar með umsagnarfresti til 9. desember. Þá var ákveðið að Ólafur Þór Gunnarsson verði framsögumaður málsins.

09:10 Á fund nefndarinnar mættu Bjarnheiður Gautadóttir, Gissur Pétursson og Stefán Daníel Jónsson frá félagsmálaráðuneytinu. Fjölluðu þau um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 36. mál - fræðsla um vefjagigt og endurskoðun á skipan sérhæfðrar endurhæfingarþjónustu Kl. 09:35
Nefndin ræddi málið.

4) Önnur mál Kl. 09:45
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 09:45