29. fundur
velferðarnefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 12. desember 2019 kl. 18:30


Mætt:

Helga Vala Helgadóttir (HVH) formaður, kl. 18:35
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn) 1. varaformaður, kl. 18:40
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 18:35
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 18:35
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 18:35
Halldóra Mogensen (HallM), kl. 18:35
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 18:35
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 18:35
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF) fyrir Ásmund Friðriksson (ÁsF), kl. 18:35
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 18:35

Nefndarritari: Arnar Kári Axelsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 18:35
Frestað.

2) 320. mál - almennar íbúðir Kl. 18:40
Samþykkt var að afgreiða málið til 2. umræðu með atkvæðum Höllu Signýjar Kristjánsdóttur, Ólafs Þórs Gunnarssonar, Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur, Njáls Trausta Friðbertssonar og Vilhjálms Árnasonar.

Halla Signý Kristjánsdóttir, Ólafur Þór Gunnarsson, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Njáll Trausti Friðbertsson og Vilhjálmur Árnason skrifuðu undir nefndarálit meiri hluta og breytingartillögur.

3) 8. mál - sjúkratryggingar Kl. 18:55
Nefndin fjallaði um málið.

4) 17. mál - 300 þús. kr. lágmarksframfærsla almannatrygginga Kl. 18:55
Dagskrárlið frestað.

5) 37. mál - gjaldfrjálsar krabbameinsmeðferðir Kl. 19:00
Nefndin fjallaði um málið.

6) Önnur mál Kl. 19:15
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 19:15