60. fundur
velferðarnefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 3. apríl 2020 kl. 13:00


Mætt:

Helga Vala Helgadóttir (HVH) formaður, kl. 13:00
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn) 1. varaformaður, kl. 13:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF) 2. varaformaður, kl. 13:00
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 13:00
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 13:00
Halldóra Mogensen (HallM), kl. 13:00
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 13:00
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 13:00
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 13:11

Guðmundur Ingi Kristinsson boðaði forföll.
Ásmundur Friðriksson vék af fundi kl. 14:25.

Nefndarritarar:
Arnar Kári Axelsson
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl.

Þá var Arnar Kári Axelsson sérfræðingur nefndarinnar í fjarfundabúnaði.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 13:00
Frestað.

2) 664. mál - atvinnuleysistryggingar og Ábyrgðasjóður launa Kl. 13:00
Á fund nefndarinnar mættu Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra, Gissur Pétursson og Bjarnheiður Gautadóttir frá félagsmálaráðuneytinu. Fjölluðu þau um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.
Þá mætti á fund nefndarinnar Unnur Sverrisdóttir frá Vinnumálastofnun. Fjallaði hún um málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

3) Vikuskýrsla sérstaks teymis vegna þjónustu við viðkvæma hópa. Kl. 13:40
Á fund nefndarinnar mættu Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherrra, Gissur Pétursson og Bjarnheiður Gautadóttir frá félagsmálaráðuneytinu. Fjölluðu þau um vikuskýrslu sérstaks teymis vegna þjónustu við viðkvæma hópa og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) Önnur mál Kl. 15:00
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 14:30