67. fundur
velferðarnefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í fjarfundur, föstudaginn 8. maí 2020
kl. 09:00
Mætt:
Helga Vala Helgadóttir (HVH) formaður, kl. 09:00Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn) 1. varaformaður, kl. 09:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF) 2. varaformaður, kl. 09:00
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 09:15
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 09:00
Halldóra Mogensen (HallM), kl. 09:00
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 09:00
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:00
Guðmundur Ingi Kristinsson boðaði forföll.
Nefndarritari: Arnar Kári Axelsson
Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl.
Bylgja Árnadóttir, sérfræðingur nefndarinnar, sat fundinn.
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 09:00
Frestað.
2) 446. mál - persónuvernd og vinnsla persónuupplýsinga Kl. 09:00
Á fund nefndarinnar mætti Vigdís Eva Líndal frá Persónuvernd. Fjallaði hún um málið og svaraði spurningum nefndarmanna.
3) 634. mál - siðferðileg gildi og forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu Kl. 09:40
09:40 Á fund nefndarinnar mætti Vilhjálmur Árnason frá Siðfræðistofnun Háskóla Íslands. Fjallaði hann um málið og svaraði spurningum nefndarmanna.
10:40 Á fund nefndarinnar mættu Árni Múli Jónasson og Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir frá Landssamtökunum Þroskahjálp. Fjölluðu þau um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.
4) 723. mál - aðgerðir í þágu atvinnulausra vegna COVID-19 heimsfaraldursins Kl. 11:20
Frestað.
Nefndin ræddi málið.
6) Önnur mál Kl. 11:56
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 11:56