68. fundur
velferðarnefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í fjarfundur, laugardaginn 9. maí 2020 kl. 13:00


Mætt:

Helga Vala Helgadóttir (HVH) formaður, kl. 13:00
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn) 1. varaformaður, kl. 13:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF) 2. varaformaður, kl. 13:00
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 13:00
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 13:00
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 13:00
Halldóra Mogensen (HallM), kl. 13:00
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 13:00
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 13:00
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF) fyrir Vilhjálm Árnason (VilÁ), kl. 13:00

Nefndarritari: Arnar Kári Axelsson

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 13:00
Frestað.

2) Réttur til atvinnuleysisbóta vegna minnkaðs starfshlutfalls Kl. 13:00
Á fund nefndarinnar mættu Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra og Gissur Pétursson, Bjarnheiður Gautadóttir og Gylfi Arnbjörnsson frá félagsmálaráðuneytinu. Fjölluðu þau um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 437. mál - almannatryggingar Kl. 15:20
Tillaga um afgreiðslu málsins var samþykkt af öllum nefndarmönnum.

Að nefndaráliti meiri hluta standa Helga Vala Helgadóttir, Halla Signý Kirstjánsdóttir, Ólafur Þór Gunnarsson, Ásmundur Friðriksson, Anna Kolbrún Árnadóttir, Guðmundur Ingi Kristinsson, Lilja Rafney Magnúsdóttir og Vilhjálmur Árnason, þar af Guðmundur Ingi Kristinsson með fyrirvara.

Hanna Katrín Friðriksson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykk álitinu.

4) 328. mál - ávana- og fíkniefni Kl. 15:28
Ákveðið var að taka málið aftur til afgreiðslu.
Tillaga að afgreiðslu málsins var samþykkt af öllum nefndarmönnum.

Að nefndaráliti meiri hluta standa Helga Vala Helgadóttir, Ólafur Þór Gunnarsson, Anna Kolbrún Árnadóttir, Halla Signý Kristjánsdóttir, Halldóra Mogensen, Lilja Rafney Magnúsdóttir og Njáll Trausti Friðbertsson, þar af Halldóra Mogensen með fyrirvara.

Hanna Katrín Friðriksson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykk álitinu.

5) Önnur mál Kl. 15:40
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 15:40