95. fundur
velferðarnefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 29. júní 2020 kl. 08:59


Mætt:

Helga Vala Helgadóttir (HVH) formaður, kl. 08:59
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn) 1. varaformaður, kl. 08:59
Ásmundur Friðriksson (ÁsF) 2. varaformaður, kl. 08:59
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 08:59
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 08:59
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 08:59
Halldóra Mogensen (HallM), kl. 08:59
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 08:59
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 08:59

Nefndarritari: Sævar Bachmann Kjartansson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Dagskrárlið frestað.

2) 23. mál - ávana- og fíkniefni Kl. 09:02
Málið var rætt.
Allir viðstaddir nefndarmenn samþykktu að afgreiða málið til annarrar umræðu, utan Ásmundar Friðrikssonar og Vilhjálms Árnasonar.

Undir nefndarálit rita Helga Vala Helgadóttir, Halldóra Mogensen og Guðmundur Ingi Kristinsson.
Hanna Katrín Friðriksson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, var samþykk nefndaráliti.

3) 135. mál - almannatryggingar Kl. 09:16
Málið var rætt.
Allir viðstaddir nefndarmenn samþykktu að afgreiða málið til annarrar umræðu.

Undir nefndarálit rita Helga Vala Helgadóttir, Halldóra Mogensen, Guðmundur Ingi Kristinsson og Anna Kolbrún Árnadóttir.

Hanna Katrín Friðriksson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, var samþykk nefndaráliti.

4) Önnur mál Kl. 09:20
Rætt um aðstæður verkafólks á Íslandi í ljósi nýlegs bruna íbúðarhúsnæðis á Bræðraborgarstíg.
Tekin ákvörðun um að boða til fundar með borgarstjóra Reykjavíkur, félagsmálaráðherra, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, fulltrúum verkalýðsfélaga o.fl. vegna brunans.

Fundi slitið kl. 09:26