20. fundur
velferðarnefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn mánudaginn 7. desember 2020 kl. 09:00


Mætt:

Helga Vala Helgadóttir (HVH) formaður, kl. 09:00
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn) 1. varaformaður, kl. 09:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF) 2. varaformaður, kl. 09:00
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 09:00
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 09:00
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 09:00
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:00
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 09:00
Sara Elísa Þórðardóttir (SEÞ), kl. 09:00
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:00

Nefndarritarar:
Inga Skarphéðinsdóttir
Ívar Már Ottason

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Frestað.

2) 323. mál - fæðingar- og foreldraorlof Kl. 09:00
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Þorberu Fjölnisdóttur frá Öryrkjabandalagi Íslands, Jóhönnu Ásgeirsdóttur og Gunndísi Evu Baldursdóttur frá Landssamtökum íslenskra stúdenta, Sigríði Völu Halldórsdóttur frá Gleym-mér-ei og Gunnlaugu Thorlacius og Kjartan Valgarðsson frá Geðverndarfélagi Íslands.

3) 361. mál - félagsleg aðstoð og almannatryggingar Kl. 10:00
Nefndin samþykkti að afgreiða málið til annarrar umræðu. Allir viðstaddir nefndarmenn skrifuðu undir nefndarálit.

4) 362. mál - greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs Kl. 10:20
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Bjarnheiði Gautadóttur og Jón Þór Þorvaldsson frá félagsmálaráðuneyti.

5) 371. mál - sjúklingatrygging Kl. 10:55
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Ástu Valdimarsdóttur, Áslaugu Einarsdóttur og Þórunni Oddnýju Steinsdóttur frá heilbrigðisráðuneyti.

6) Önnur mál Kl. 11:20
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:20