26. fundur
velferðarnefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn fimmtudaginn 17. desember 2020 kl. 08:30


Mætt:

Helga Vala Helgadóttir (HVH) formaður, kl. 08:30
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn) 1. varaformaður, kl. 08:30
Ásmundur Friðriksson (ÁsF) 2. varaformaður, kl. 08:30
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 08:30
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 08:30
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 08:30
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 08:30
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 08:30
Sara Elísa Þórðardóttir (SEÞ), kl. 08:30
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 08:30

Nefndarritarar:
Inga Skarphéðinsdóttir
Ívar Már Ottason

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 08:30
Fundargerð 25. fundar var samþykkt.

2) 362. mál - greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs Kl. 08:30
Nefndin ákvað að afgreiða málið til þriðju umræðu. Allir nefndarmenn skrifuðu undir nefndarálit með breytingartillögu, þar af Anna Kolbrún Árnadóttir með fyrirvara.

3) 323. mál - fæðingar- og foreldraorlof Kl. 09:00
Nefndin ákvað að afgreiða málið til annarrar umræðu. Ólafur Þór Gunnarsson, Ásmundur Friðriksson, Halla Signý Kristjánsdóttir, Lilja Rafney Magnúsdóttir og Vilhjálmur Árnason skrifuðu undir nefndarálit með breytingartillögu, þar af Vilhjálmur Árnason með fyrirvara. Anna Kolbrún Árnadóttir, Helga Vala Helgadóttir og Sara Elísa Þórðardóttir boðuðu hver um sig nefndarálit og Guðmundur Ingi Kristjánsson boðaði breytingartillögu.

4) Önnur mál Kl. 09:20
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 09:20