6. fundur
velferðarnefndar á 153. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 17. október 2022 kl. 09:15


Mætt:

Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) formaður, kl. 09:15
Oddný G. Harðardóttir (OH) 1. varaformaður, kl. 09:15
Ásmundur Friðriksson (ÁsF) 2. varaformaður, kl. 09:15
Guðbrandur Einarsson (GE), kl. 09:15
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 09:15
Guðrún Hafsteinsdóttir (GHaf), kl. 09:15
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir (HHH), kl. 09:15
Halldóra Mogensen (HallM), kl. 09:33
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 10:25

Nefndarritari: Þórhildur Líndal

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:15
Fundargerð 5. fundar var samþykkt.

2) 211. mál - sjúklingatrygging Kl. 09:15
Á fund nefndarinnar mættu Guðrún Aspelund frá embætti landlæknis og María Heimisdóttir og Berglind Ýr Karlsdóttir frá Sjúkratryggingum Íslands. Fóru þær yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 272. mál - húsaleigulög Kl. 10:00
Á fund nefndarinnar mættu Ingveldur Sæmundsdóttir og Lísa Margrét Sigurðardóttir frá Innviðaráðuneyti og Aldís Hilmarsdóttir og Drengur Óla Þorsteinsson frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Fóru þau yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) 44. mál - almannatryggingar Kl. 09:37
Nefndin staðfesti umsagnarbeiðni sem send var út 10. október 2022, skv. heimild í 2. mgr. 23. gr. starfsreglna fastanefnda Alþingis, sbr. bókun nefndar á 4. fundi. Ákveðið var að Guðmundur Ingi Kristinsson yrði framsögumaður málsins.

5) 41. mál - réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins Kl. 09:37
Ákveðið var að senda málið út til umsagnar með tveggja vikna umsagnarfresti og að Guðrún Hafsteinsdóttir yrði framsögumaður þess.

6) 213. mál - fjarvinnustefna Kl. 09:38
Ákveðið var að senda málið til umsagnar með tveggja vikna umsagnarfresti.

7) 98. mál - uppbygging geðdeilda Kl. 09:38
Ákveðið var að senda málið til umsagnar með tveggja vikna umsagnarfresti og að Oddný Harðardóttir yrði framsögumaður þess.

8) 88. mál - orlofshúsnæði örorkulífeyrisþega Kl. 09:39
Ákveðið var að senda málið til umsagnar með tveggja vikna umsagnarfresti og að Jódís Skúladóttir yrði framsögumaður þess.

9) 196. mál - breyting á lögum um ættleiðingar Kl. 09:39
Ákveðið var að senda málið til umsagnar með tveggja vikna umsagnarfresti og að Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir yrði framsögumaður þess.

10) Önnur mál Kl. 09:40
Nefndin ræddi starfið framundan.

Fundi slitið kl. 10:51