23. fundur
velferðarnefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 20. janúar 2014 kl. 10:05


Mættir:

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (SII) formaður, kl. 10:05
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE) 1. varaformaður, kl. 10:25
Björt Ólafsdóttir (BjÓ) 2. varaformaður, kl. 10:05
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 10:05
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 10:05
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 10:05
Oddgeir Ágúst Ottesen (OddO) fyrir UBK, kl. 10:05

Katrín Júlíusdóttir var fjarverandi vegna annarra þingstarfa.
Elín Hirst og Páll Jóhann Pálsson voru fjarverandi.
Björt Ólafsdóttir vék af fundi kl. 12:03.

Nefndarritari: Heimir Skarphéðinsson

Bókað:

1) Fundargerðir. Kl. 10:05
Fundargerð síðasta fundar var samþykkt.

2) Málefni aldraðra á hjúkrunarheimilum. Kl. 10:06
Nefndin ræddi málefni aldraðra á hjúkrunarheimilum í ljósi nýlegra frétta af mikilli notkun fjötra á hjúkrunarheimilinu Sólvangi. Á fund nefndarinnar komu Laura Scheving Thorsteinsson og Sigríður Egilsdóttir frá embætti landlæknis.

3) 159. mál - vísindarannsóknir á heilbrigðissviði Kl. 11:05
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um 159. og 160. mál og fékk á sinn fund Hörð Helga Helgason frá Persónuvernd sem gerði grein fyrir umsögn stofnunarinnar og svaraði spurningum nefndarmanna.

4) 160. mál - lífsýnasöfn Kl. 11:05
Sjá fyrri dagskrárlið.

5) 222. mál - lyfjalög Kl. 11:02
Nefndin sendi málið til umsagnar með fresti til 10. febrúar.

6) 223. mál - heilbrigðisþjónusta Kl. 11:03
Nefndin sendi málið til umsagnar með fresti til 10. febrúar.

7) Önnur mál Kl. 12:15
Fleira var ekki rætt.

Fundi slitið kl. 12:15