25. fundur
velferðarnefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í stigaherbergi í Alþingishúsi, miðvikudaginn 10. desember 2014 kl. 13:03


Mættir:

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (SII) formaður, kl. 13:03
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE) 1. varaformaður, kl. 13:03
Björt Ólafsdóttir (BjÓ) 2. varaformaður, kl. 13:03
Brynjar Níelsson (BN), kl. 13:03
Guðbjartur Hannesson (GuðbH), kl. 13:07
Páll Jóhann Pálsson (PJP), kl. 13:03
Ragnheiður Ríkharðsdóttir (RR), kl. 13:03
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 13:03

Ásmundur Friðriksson var fjarverandi.

Nefndarritari: Gunnlaugur Helgason

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 13:03
Samþykkt fundargerðar var frestað.

2) 322. mál - almannatryggingar Kl. 13:04
Ákveðið var að meiri hluti nefndarinnar (Þórunn Egilsdóttir, Ásmundur Friðriksson, Brynjar Níelsson, Páll Jóhann Pálsson og Ragnheiður Ríkharðsdóttir) flytti frumvarp varðandi afmarkaða hluta frumvarpsins.

3) Önnur mál Kl. 13:13
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 13:13