78. fundur
velferðarnefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 1. júní 2016 kl. 09:10


Mættir:

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (SII) formaður, kl. 09:10
Elsa Lára Arnardóttir (ELA) 1. varaformaður, kl. 09:24
Páll Valur Björnsson (PVB) 2. varaformaður, kl. 09:10
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:10
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir (ÓÞ), kl. 09:14
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 09:10
Steingrímur J. Sigfússon (SJS), kl. 09:10
Unnur Brá Konráðsdóttir (UBK), kl. 09:10

Elsa Lára Arnardóttir boðaði seinkun. Ragnheiður Ríkharðsdóttir boðaði forföll vegna annarra þingstarfa. Ásmundur Friðriksson vék af fundi kl. 10:45.

Nefndarritari: Gunnlaugur Helgason

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:10
Fundargerð 77. fundar var samþykkt.

2) 31. mál - sólarhringsmeðferð í öndunarvél á heimili sjúklinga Kl. 09:10
Málið var afgreitt með samþykki allra viðstaddra. Að nefndaráliti stóðu allir viðstaddir, auk Ásmundar Friðrikssonar og Ragnheiðar Ríkharðsdóttur samkvæmt heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis.

3) 676. mál - sjúkratryggingar Kl. 09:26
Nefndin ræddi um málið.

4) 407. mál - húsnæðisbætur Kl. 09:52
Nefndin ræddi um málið.

5) Önnur mál Kl. 11:47
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 12:00