33. fundur
velferðarnefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 20. febrúar 2019 kl. 09:00


Mættir:

Halldóra Mogensen (HallM) formaður, kl. 09:00
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn) 1. varaformaður, kl. 09:00
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 09:00
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 09:00
Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 09:00
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 09:00
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 09:00
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:00
Unnur Brá Konráðsdóttir (UBK) fyrir Ásmund Friðriksson (ÁsF), kl. 09:00
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:00

Nefndarritari: Arnar Kári Axelsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Dagskrárlið frestað.

2) Félagsleg undirboð á íslenskum vinnumarkaði Kl. 09:00
Á fund nefndarinnar mættu Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra og Gissur Pétursson og Jón Sigurðsson frá félagsmálaráðuneytinu. Fjölluðu þeir um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 530. mál - breyting á ýmsum lögum til innleiðingar á tilskipun (ESB) 2015/1794 Kl. 10:00
Ákveðið var að senda málið til umsagnar með þriggja vikna umsagnarfresti.

4) 296. mál - velferðartækni Kl. 10:00
Ákveðið var að senda málið til umfjöllunar með þriggja vikna umsagnarfresti. Þá var ákveðið að Halla Signý Kristjánsdóttir verði framsögumaður málsins.

5) 255. mál - réttur barna sem aðstandendur Kl. 10:00
Ákveðið var að senda málið til umsagnar með þriggja vikna umsagnarfresti. Þá var ákveðið að Vilhjálmur Árnason verði framsögumaður málsins.

6) 393. mál - þungunarrof Kl. 10:10
Á fund nefndarinnar mættu Alma D. Möller og Sigríður Haraldsdóttir frá Embætti landlæknis. Fjölluðu þær um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

7) Önnur mál Kl. 10:55
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:55