36. fundur
velferðarnefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 6. mars 2019 kl. 09:30


Mættir:

Halldóra Mogensen (HallM) formaður, kl. 09:35
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn) 1. varaformaður, kl. 09:30
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 09:30
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 09:30
Ásgerður K. Gylfadóttir (ÁsgG) fyrir Höllu Signý Kristjánsdóttur (HSK), kl. 09:30
Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 09:30
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 09:30
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:30

Ásmundur Friðriksson og Vilhjálmur Árnason voru fjarverandi vegna annarra þingstarfa.

Nefndarritari: Arnar Kári Axelsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:30
Fundargerð 35. fundar var samþykkt.

2) 509. mál - heilbrigðisstefna til ársins 2030 Kl. 09:30
Á fund nefndarinnar mættu Birgir Jakobsson, Elsa B. Friðfinnsdóttir, Áslaug Einarsdóttir og Sigríður Jónsdóttir frá heilbrigðisráðuneytinu. Fjölluðu þau um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) Viðræður ríkis og sveitarfélaga vegna hjúkrunar-, dvalar- og dagdvalarrýma Kl. 10:15
Á fund nefndarinnar mættu Pétur Magnússon, Eybjörg H. Hauksdóttir og Björn Bjarki Þorsteinsson frá Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu. Fjölluðu þau um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) Utanspítalaþjónusta Kl. 10:50
Dagskrárlið frestað.

5) Önnur mál Kl. 11:00
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:00