Skýrsla um eftirlit með skuldum og fjármagnskostnaði ríkisstofnana.

(1211125)
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
29.04.2014 46. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Eftirlit með skuldum og fjármagnskostnaði ríkisstofnana
Á fund nefndarinnar komu Ingþór Karl Einarsson frá fjármála- og efnahagsráðuneyti og Kristín Kalmansdóttir og Bjarkey Rut Gunnlaugsdóttir frá Ríkisendurskoðun. Gerðu þau grein fyrir stöðu mála og svöruðu spurningum nefndarmanna. Þegar gestir höfðu vikið af fundi lagði formaður til að nefndin lyki umfjöllun um skýrsluna.
27.03.2014 40. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Eftirlit með skuldum og fjármagnskostnaði ríkisstofnana
Á fundinn komu Kirstín Kalmansdóttir og Bjarkey Rut Gunnlaugsdóttir frá Ríkisendurskoðun og gerðu grein fyrir afstöðu stofnunarinnar til svarbréfs fjármála- og efnahagsráðuneytis.

Samþykkt að fá fulltrúa ráðuneytisins og Ríkisendurskoðunar að nýju á fund.
25.03.2014 39. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Skýrsla um eftirlit með skuldum og fjármagnskostnaði ríkisstofnana.
Formaður kynnti nefndinni svar fjármála- og efnahagsráðuneytis við fyrirspurn nefndarinnar í tengslum við skýrslu Ríkisendurskoðunar um eftirlit með skuldum og fjármagnskostnaði ríkisstofnana. Hann lagði til að bréfið yrði sent Ríkisendurskoðun og afstöðu stofnunarinnar óskað. Var það samþykkt.