Ársskýrsla Ríkisendurskoðunar 2012

(1304067)
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
17.10.2013 6. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Ársskýrsla Ríkisendurskoðunar 2012
Á fundinn komu Lárus Ögmundsson og Óli Jón Jónsson frá Ríkisendurskoðun og gerðu grein fyrir áherslum í ársskýrslu embættisins frá 2012 ásamt því að svara spurningum nefndarmanna.

Samþykkt var eftirfarandi bókun: Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd vekur athygli á mikilvægi þess að eftirlitshlutverk Alþingis sé ekki veikt með niðurskurði á fjárlögum til Ríkisendurskoðunar og beinir því til forsætisnefndar að staðinn verði vörður um stofnunina þannig að raungildi fjárframlaga haldist milli ára og hún geti sinnt lögbundnum verkefnum sínum.
08.10.2013 1. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Ársskýrsla Ríkisendurskoðunar 2012
Frestað að taka fyrir.