Staða og horfur í ríkisfjármálum

(1306112)
Fjárlaganefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
26.06.2013 4. fundur fjárlaganefndar Staða og horfur í ríkisfjármálum
Fjármála- og efnahagsráðuneyti: Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, Guðmundur Árnason, Nökkvi Bragason, Hrafn Steinarsson og Elín Guðmundsdóttir. Farið var yfir stöðu og horfur í ríkisfjármálunum. Lögð fram kynning á stöðu og horfum í ríkisfjármálum 2013-2014.
19.06.2013 2. fundur fjárlaganefndar Staða og horfur í ríkisfjármálum
Fjármála- og efnahagsráðuneyti: Ingþór Karl Eiríksson og Björn Þór Hermannsson. Farið var yfir minnisblað fjármála- og efnahagsráðuneytisins, dags. 14. júní 2013, um framkvæmd fjárlaga fyrstu fjóra mánuði ársins 2013.
Lagt fram minnisblað fjármála- og efnahagsráðuneytisins, dags. 19. júní 2013, sem sýnir bráðabirgðauppgör ríkissjóðs fyrir árið 2012 og samanburð við áætlun sama ár.

Formaður óskaði eftir að fjármála- og efnahagsráðuneytið sendi fjárlaganefnd afrit af þeim skriflegu reglum sem gilda um úthlutun úr óvissusjóði fjárlaga.

Ákveðið var að boða fjármála- og efnahagsráðherra á fund nefndarinnar.

Oddný Harðardóttir bókar eftirfarandi: Með þessari bókun er því harðlega mótmælt að beiðni minni um fund í fjárlaganefnd í kjölfar blaðamannafundar um stöðu ríkisfjármála sem forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar héldu miðvikudaginn 12. júní hafi verið hafnað. Það er óásættanlegt að nefndarmenn fái ekki kynningu á stöðunni fyrr en viku eftir að blaðamenn fá þá kynningu. Augljóst er að með því er kjörnum fulltrúum haldið utan við upplýsta umræðu um málið. Auk þess var aðeins farið yfir veikleika á gjaldahlið á fundinum 19. júní en í fundarbeiðni minni kom fram skýr ósk um að farið yrði yfir stöðu ríkisfjármála og fjallað bæði um gjöld og tekjur. Þessum vinnubrögðum meiri hluta fjárlaganefndar er mótmælt og þess vænst að þau verði vandaðri héðan í frá með áherslu á samráð og samvinnu nefndarmanna.
Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.