Tilskipun 2012/33/ESB (Brennisteinsinnihald skipaeldsneytis).
(1402038)
Utanríkismálanefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
13.05.2014 | 54. fundur utanríkismálanefndar | Tilskipun 2012/33/ESB (Brennisteinsinnihald skipaeldsneytis). Á fund nefndarinnar komu Guðmundur Þór Gunnarsson frá Samskip og Ásbjörn Skúlason frá Eimskip. Gestirnir fóru yfir málið og spurningum nefnarmanna. Nefndin lauk athugun sinni á málinu. |
05.05.2014 | 48. fundur utanríkismálanefndar | Tilskipun 2012/33/ESB (Brennisteinsinnihald skipaeldsneytis). Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um tilskipun 2012/33/ESB, er varðar brennisteinsinnihald skipaeldsneytis. Síðast hafði málið verið til umfjöllunar hjá nefndinni 13. febrúar 2014, undir dagskrárliðnum um fund sameiginlegu EES-nefndarinnar 14. febrúar 2014. |
13.02.2014 | 25. fundur utanríkismálanefndar | Tilskipun 2012/33/ESB (Brennisteinsinnihald skipaeldsneytis). Á fund nefndarinnar komu Bryndís Kjartansdóttir frá utanríkisráðuneyti, Kjartan Ingvarsson frá umhverfis- og auðlindaráðuneyti, Jón Halldórsson frá Olís, Magnús Ásgeirsson frá N1 og Lúðvík Björgvinsson frá Skeljungi. Fjölluðu gestirnir um tilskipun 2012/33/ESB (Brennisteinsinnihald skipaeldsneytis) og svöruðu spurningum nefndarmanna. |