Reglugerð (ESB) nr. 157/2014 um skilyrði fyrir aðgengilegri yfirlýsingu á vefnum um nothæfi fyrir byggingarvörur

(1409122)
Utanríkismálanefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
13.11.2014 13. fundur utanríkismálanefndar Reglugerð (ESB) nr. 157/2014 um skilyrði fyrir aðgengilegri yfirlýsingu á vefnum um nothæfi fyrir byggingarvörur
Fyrir fundinum lá álit umhverfis- og samgöngunefndar eftir efnislega umfjöllun samkvæmt 2. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála. Nefndin lauk umfjöllun sinni um málið og verður utanríkisráðuneyti upplýst þar um.
05.11.2014 12. fundur umhverfis- og samgöngunefndar Reglugerð (ESB) nr. 157/2014 um skilyrði fyrir aðgengilegri yfirlýsingu á vefnum um nothæfi fyrir byggingarvörur
Nefndin afgreiddi álit um málið til utanríkismálanefndar.
24.09.2014 3. fundur umhverfis- og samgöngunefndar Reglugerð 157/2014 um skilyrði fyrir aðgengilegri yfirlýsingu á vefnum um nothæfi fyrir byggingarvörur
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Steinunni Fjólu Sigurðardóttur, Kjartan Ingvarsson og Ásdísi Auðunsdóttur frá umhverfis- og auðlindaráðuneyti. Kynntu þau málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.