Tilskipun 2014/26/ESB um höfundarétt og leyfisveitingu fyrir netafnot tónlistar

(1511195)
Utanríkismálanefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
01.03.2016 33. fundur utanríkismálanefndar Tilskipun 2014/26/ESB um höfundarétt og leyfisveitingu fyrir netafnot tónlistar
Á fund nefndarinnar komu Bryndís Kjartansdóttir frá utanríkisráðuneyti, Jón Vilberg frá mennta- og menningarmálaráðuneyti og Guðrún Björk Bjarnadóttir frá STEF.

Gestirnir gerðu grein fyrir málinu og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Formaður kynnti álit allsherjar- og menntamálanefndar eftir efnislega umfjöllun samkvæmt 2. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála. Nefndin lauk umfjöllun sinni um málið og verður utanríkisráðuneyti upplýst þar um.
23.02.2016 32. fundur utanríkismálanefndar Tilskipun 2014/26/ESB um höfundarétt og leyfisveitingu fyrir netafnot tónlistar
Formaður kynnti álit allsherjar- og menntamálanefndar eftir efnislega umfjöllun samkvæmt 2. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála. Nefndin mun fjalla nánar um málið og var afgreiðslu þess frestað.
04.02.2016 35. fundur allsherjar- og mennta­málanefndar Tilskipun 2014/26/ESB um höfundarétt og leyfisveitingu fyrir netafnot tónlistar
Nefndin afgreiddi álit sitt til utanríkismálanefndar. Allir viðstaddir nefndarmenn voru samþykkir álitinu.
19.01.2016 30. fundur allsherjar- og mennta­málanefndar Tilskipun 2014/26/ESB um höfundarétt og leyfisveitingu fyrir netafnot tónlistar
Á fund nefndarinnar komu Guðrún Björk Bjarnadóttir frá STEF. Fór hún yfir tilskipun 2014/26/ESB um höfundarétt og leyfisveitingu fyrir netafnot tónlistar og svaraði spurningum nefndarmanna.
27.11.2015 18. fundur allsherjar- og mennta­málanefndar Tilskipun 2014/26/ESB um höfundarétt og leyfisveitingu fyrir netafnot tónlistar
Á fund nefndarinnar komu Jón Vilberg Guðjónsson frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu og Bryndís Kjartansdóttir frá utanríkismálaráðuneytinu. Fóru þau yfir tilskipunina og svöruðu spurningum nefndarmanna.