Vaxtakostnaður vegna stofnunar Arion banka
(1601094)
Fjárlaganefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
03.02.2016 | 38. fundur fjárlaganefndar | Vaxtakostnaður vegna stofnunar Arion banka Fyrri hluti fundarins um vaxtakostnað vegna stofnunar Arion banka hófst kl. 10:01 og var hann opinn fjölmiðlum. Til fundar við nefndina komu Jón Þór Sturluson og Ragnar Hafliðason frá Fjármálaeftirlitinu. Um kl. 10:45 var fundurinn lokaður fjölmiðlum og komu þá til fundarins frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu Þórhallur Arason og Þorsteinn Þorsteinsson. Þá var umræðum um vaxtakostnað vegna stofnunar Arion banka haldið áfram en jafnframt kynntu gestirnir ýmsar forsendur sem gengið var útfrá við stofnun nýju bankanna og svöruðu spurningum frá nefndarmönnum. |