Útboðsmál Vegagerðarinnar

(1608078)
Fjárlaganefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
05.09.2016 79. fundur fjárlaganefndar Útboðsmál Vegagerðarinnar
Til fundar við nefndina komu Hreinn Haraldsson, Jónas Snæbjörnsson, Daníel Árnason og Ásrún Rúdólfsdóttir frá Vegagerðinni. Þau fjölluðu um útboðsmál Vegagerðarinnar og svöruðu spurningum nefndarmanna. Þá lögðu þau fram minnisblað um verkferla við kaup á vörum, þjónustu og verkum hjá Vegagerðinni. Einnig var lagt fram minnisblað dags. 5. september 2016 yfir fjölda útboða hjá Vegagerðinni, meðalupphæð samninga o.fl.