Tillaga að bréfi frá Íslandsdeildinni til skrifstofu Norðurlandaráðs um íslenska starfsmenn á sameiginlegri upplýsingadeild Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar

(1609072)
Íslandsdeild Norðurlandaráðs

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
20.09.2016 4. fundur Íslandsdeildar Norður­landa­ráðs Tillaga að bréfi frá Íslandsdeildinni til skrifstofu Norðurlandaráðs um íslenska starfsmenn á sameiginlegri upplýsingadeild Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar
Íslandsdeild Norðurlandaráðs samþykkti að fela ritara deildarinnar að taka saman bréf til skrifstofu Norðurlandaráðs með ósk um að framvegis verði íslenskumælandi túlkur/þýðandi og upplýsingaráðgjafi á upplýsingadeild Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar í Kaupmannahöfn.