Kosning formanns

(1701065)
Fjárlaganefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
25.01.2017 22. fundur fjárlaganefndar Kosning formanns
Haraldur Benediktsson annaðist fundarstjórn og lagði fram tillögu um að hann yrði kosinn formaður fjárlaganefndar. Var sú tillaga samþykkt af meiri hlutanum en hann skipa Haraldur Benediktsson, Theodóra S. Þorsteinsdóttir, Hanna Katrín Friðriksson, Páll Magnússon og Njáll Trausti Friðbertsson. Minni hlutinn sat hjá við atkvæðagreiðsluna. Hann skipa Oddný G. Harðardóttir, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Björn Leví Gunnarsson og Lilja Dögg Alfreðsdóttir.
25.01.2017 1. fundur umhverfis- og samgöngunefndar Kosning formanns
Valgerður Gunnarsdóttir var kosin formaður nefndarinnar.

Ari Trausti Guðmundsson, Einar Brynjólfsson, Gunnar Bragi Sveinsson og Kolbeinn Óttarsson Proppé greiddu ekki atkvæði.