Kosning 2. varaformanns

(1701072)
Velferðarnefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
22.02.2017 7. fundur velferðarnefndar Kosning 2. varaformanns
Hildur Sverrisdóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokks, var kosin 2. varaformaður nefndarinnar.
25.01.2017 1. fundur velferðarnefndar Kosning 1. og 2. varaformanns
Vilhjálmur Árnason var kjörinn 1. varaformaður nefndarinnar og Ólöf Nordal var kjörin 2. varaformaður.
Elsa Lára Arnardóttir, Guðjón S. Brjánsson, Halldóra Mogensen og Steingrímur J. Sigfússon sátu hjá.

Steingrímur J. Sigfússon lagði fram eftirfarandi bókun sem Elsa Lára Arnardóttir, Guðjón S. Brjánsson og Halldóra Mogensen studdu: Undirritaður fulltrúi VG í velferðarnefnd situr hjá við kosningu formanns og varaformanna í velferðarnefnd. Það geri ég vegna óánægju með að nýr stjórnarmeirihluti skuli ekki hafa boðið upp á eðlilega dreifingu forustustarfa í fastanefndum þingsins milli stjórnar og stjórnarandstöðu, meiri hluta og minni hluta. Niðurstaðan er að minnsti mögulegur meiri hluti í þinginu skipar í allar formennskur og varaformennskur í fastanefndum, sem er langt umfram hlutfallslegan þingstyrk og afturför til meirihlutaræðis frá viðleitni undangenginna ára til að efla sjálfræði Alþingis og auka þverpólitíska samvinnu.