Styrkveitingar úr afrekssjóði Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands

(1701171)
Fjárlaganefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
01.02.2017 23. fundur fjárlaganefndar Styrkveitingar úr afrekssjóði Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands
Til fundarins komu Jón Vilberg Guðjónsson og Óskar Þór Ármannsson frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu og fjölluðu um verklag og reglur sem gilda um styrkveitingar úr Afrekssjóði Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Einnig var fjallað um fjármögnun sjóðsins og svöruðu gestirnir spurningum nefndarmanna um fyrrgreind mál.
Gestirnir lögðu fram samning um fjármögnun Afrekssjóðs ÍSÍ dags. 28. júlí 2016, reglugerð um Afrekssjóð ÍSÍ og handbók mennta- og menningarmálaráðuneytisins um sjóði og styrkveitingar.