Afstaða til nýs EES-máls skv. 2. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála (ríkisaðstoð)

(1805105)
Utanríkismálanefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
05.12.2018 11. fundur utanríkismálanefndar Reglugerð ráðsins (ESB) 2015/1589 um ítarlegar reglur um beitingu 108. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins (kerfisbinding)
Nefndin lauk umfjöllun sinni um málið og verður utanríkisráðuneytið upplýst þar um.
21.11.2018 14. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Reglugerð ráðsins (ESB) 2015/1589 um ítarlegar reglur um beitingu 108. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins (kerfisbinding)
Formaður fór yfir drög að áliti til utanríkismálanefndar. Samþykkt að afgreiða frá nefndinni. Nefndarmenn rita undir álit aðrir en Þorsteinn Sæmundsson og Jón Þór Ólafsson sem mun hugsanlega skila minni hluta áliti til utanríkismálanefndar.
19.11.2018 12. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Reglugerð ráðsins (ESB) 2015/1589 um ítarlegar reglur um beitingu 108. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins (kerfisbinding)
Frestað.
14.11.2018 11. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Reglugerð ráðsins (ESB) 2015/1589 um ítarlegar reglur um beitingu 108. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins (kerfisbinding)
Nefndin fjallaði um málið.
12.11.2018 10. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Reglugerð ráðsins (ESB) 2015/1589 um ítarlegar reglur um beitingu 108. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins (kerfisbinding)
Formaður kynnti drög að áliti til utanríkismálanefndar og nefndin ræddi málið. Samþykkt að óska eftir upplýsingum frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.
24.10.2018 7. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Reglugerð ráðsins (ESB) 2015/1589 um ítarlegar reglur um beitingu 108. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins (kerfisbinding)
Sjá umfjöllun við lið 2. á dagskrá.
15.10.2018 5. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Reglugerð ráðsins (ESB) 2015/1589 um ítarlegar reglur um beitingu 108. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins (kerfisbinding)
Á fundinn komu Gunnþóra Elín Erlingsdóttir frá skrifstofu Alþingis og Haraldur Steinþórsson og Díana Jónsdóttir frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.

Haraldur kynnti efni gerðarinnar og svaraði spurningum nefndarmanna.
01.06.2018 46. fundur efnahags- og viðskiptanefndar Reglugerð ráðsins (ESB) 2015/1589 um ítarlegar reglur um beitingu 108. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins (kerfisbinding)
Nefndin afgreiddi álit um upptöku gerðarinnar til utanríkismálanefndar.
01.06.2018 39. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Afstaða til nýs EES-máls skv. 2. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála (ríkisaðstoð)
Á fundinn komu Álfrún Perla Baldursdóttir frá utanríkisráðuneyti, Sif Guðjónsdóttir frá forsætisráðuneyti og Haraldur Steinþórsson og Díana Jónsdóttir frá fjármála- og efnahagsráðuneyti. Gestir gerðu grein fyrir efnisatriðum málsins ásamt stjórnskipulegum álitaefnum ásamt því að svara spurningum nefndarmanna.
31.05.2018 45. fundur efnahags- og viðskiptanefndar Reglugerð ráðsins (ESB) 2015/1589 um ítarlegar reglur um beitingu 108. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins (kerfisbinding)
Dagskrárlið frestað.
29.05.2018 43. fundur efnahags- og viðskiptanefndar Reglugerð ráðsins (ESB) 2015/1589 um ítarlegar reglur um beitingu 108. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins (kerfisbinding)
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Álfrúnu Perlu Baldursdóttur og Jóhönnu Bryndísi Bjarnadóttur frá utanríkisráðuneyti og Harald Steinþórsson frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.