Ársfundur Vestnorræna ráðsins í Nuuk

Önnur erindi (1905043)
Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
05.11.2019 6. fundur Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins Ársfundur Vestnorræna ráðsins í Nuuk
Meðlimir Íslandsdeildar ræddu nýliðinn ársfund Vestnorræna ráðsins á Grænlandi og framfylgd ákvarðana sem teknar voru þar. Tvær nýjar ályktanir Vestnorræna ráðsins verða lagðar fram sem þingsályktunartillögur um leið og íslenskur texti þeirra er tilbúinn.
15.10.2019 3. fundur Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins Ársfundur Vestnorræna ráðsins í Nuuk
Íslandsdeild fór yfir dagskrá ársfundar Vestnorræna ráðsins í Nuuk 21.-25. október og undirbjó þátttöku sína.
17.09.2019 1. fundur Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins Ársfundur Vestnorræna ráðsins í Nuuk
Farið var yfir dagskrá og gögn fyrir komandi ársfund Vestnorræna ráðsins í Nuuk á Grænlandi. Sérstaklega var rætt um ársreikning ráðsins fyrir árið 2018, nýjar reglur um barna- og unglingabókmenntaverðlaun ráðsins og nýjar leiðbeiningar um starf ráðsins í Norðurskautsráði.
15.05.2019 6. fundur Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins Ársfundur Vestnorræna ráðsins í Nuuk
Tilkynnt var um væntanlega frestun ársfundar Vestnorræna ráðsins í Nuuk sökum þingkosninga í Færeyjum.