Heiðurslaun listamanna

(1911074)
Allsherjar- og menntamálanefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
25.11.2019 24. fundur allsherjar- og mennta­málanefndar Heiðurslaun listamanna
Nefndin afgreiddi breytingartillögu við fjárlög 2020 um skiptingu heiðurslauna listamanna.

Nefndin ræddi almennt um fyrirkomulag og markmið heiðurslauna listamanna og samþykkti að taka þau mál til endurskoðunar á vormánuðum.
25.11.2019 23. fundur allsherjar- og mennta­málanefndar Heiðurslaun listamanna
Nefndin leitaði eftir umsögn frá nefnd skv. 2. mgr. 3. gr. laga um heiðurslaun listamanna, nr. 66/2012.
Nefndin fór yfir umsögnina.

Tillaga um að fresta afgreiðslu og taka málið til umræðu að nýju á fundi nefndarinnar kl. 15.45 var samþykkt.
08.11.2019 17. fundur allsherjar- og mennta­málanefndar Heiðurslaun listamanna
Nefndin fjallaði um veitingu heiðurslauna skv. lögum nr. 66/2012. Tekin var ákvörðun um að leita umsagnar hjá nefnd skv. 2. mgr. 3. gr. laganna um þá listamenn sem til greina kemur að njóti heiðurslauna Alþingis.