Stjórnunarupplýsingar úr fjárlögum og bókhaldi

Frumkvæðismál (2001065)
Fjárlaganefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
22.01.2020 37. fundur fjárlaganefndar Stjórnunarupplýsingar úr fjárlögum og bókhaldi
Til fundarins komu Gísli Þ. Magnússon og Ingibjörg Þorsteinsdóttir frá utanríkisráðuneyti og Helgi Gunnarsson frá KPMG. Þau kynntu svokallað mælaborð utanríkisráðuneytisins og hvernig stjórnendaupplýsinga er aflað með aðstoð þess kerfis. Þá svöruðu þau spurningum nefndarmanna.
Kl. 10:47. Stefán Kjærnested og Ingþór K. Eiríksson frá Fjársýslu ríkisins. Þeir kynntu þá möguleika sem fyrir hendi eru til að vinna stjórnunarupplýsingar úr fjárlögum og bókhaldi ríkisins. Einnig kynntu þeir væntanlega þróun þessara mála. Einnig svöruðu þeir spurningum nefndarmanna.