Breyting á lyfjalögum

(2003010)
Velferðarnefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
03.03.2020 45. fundur velferðarnefndar Breyting á lyfjalögum
Á fund nefndarinnar mættu Rögnvaldur G. Gunnarsson og Sigurður Kári Árnason frá heilbrigðisráðuneyti og Rúna Hauksdóttir og Sindri Kristjánsson frá Lyfjastofnun. Fóru þau yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Nefndin ákvað að flytja frumvarp til laga um breytingu á lyfjalögum, nr. 93/1994, með síðari breytingum (bann við útflutningi lyfja), með samþykki allra nefndarmanna.