Uppbygging innviða

Frumkvæðismál (2003055)
Umhverfis- og samgöngunefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
10.03.2020 49. fundur umhverfis- og samgöngunefndar Uppbygging innviða
Nefndin ræddi við Guðmund Ásmundsson og Sverri Jan Norðfjörð frá Landsneti gegnum fjarfundarbúnað. Gerðu þeir grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Hlé var gert á fundi frá kl. 09:36-10:09.

Þá mætti á fund nefndarinnar Tryggvi Þór Haraldsson frá Rarik. Gerði hann grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna.
09.03.2020 48. fundur umhverfis- og samgöngunefndar Uppbygging innviða
Á fund nefndarinnar mættu Benedikt Árnason frá forsætisráðuneytinu, Ingvi Már Pálsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu og Hermann Sæmundsson frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Kynntu þeir vinnu og niðurstöður átakshóps um úrbætur á innviðum, sem skipaður var í kjölfar fárviðrisins í desember 2019, og svöruðu spurningum nefndarmanna.