Prófun kjörbréfs
Frumkvæðismál (2011297)
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
23.11.2020 | 15. fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar | Prófun kjörbréfs Á fundinum var prófað kjörbréf Sunnu Rósar Víðisdóttur, sem hlaut kosningu sem 3. varaþingmaður Pírata í Reykjavíkurkjördæmi norður við alþingiskosningarnar 28. október 2017. Ekki voru gerðar athugasemdir við kjörbréfið og viðstaddir nefndarmenn einhuga um að mæla með samþykkt þess. |