Önnur mál

(1310017)
Fjárlaganefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
25.08.2014 69. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fleira var ekki gert.
13.08.2014 68. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fleira var ekki gert.
12.08.2014 67. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fleira var ekki gert.
04.06.2014 66. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fleira var ekki gert.
03.06.2014 65. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Formaður kynnti bréf sem fjármála- og efnahagsráðuneytinu verður sent þar sem þingsályktun um meginskiptingu útgjalda fjárlaga næsta árs kom ekki fram á 143. löggjafarþingi eins og tiltekið er í 25. gr. laga um þingsköp. Bréfið var samþykkt á fundinum mótatkvæðalaust.
02.06.2014 64. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fleira var ekki rætt.
16.05.2014 63. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fleira var ekki gert.
12.05.2014 62. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fleira var ekki gert.
08.05.2014 61. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fleira var ekki gert.
07.05.2014 60. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Ríkisendurskoðun: Ingi K. Magnússon. Rætt var um frumvarp um markaðar tekjur.

Fleira var ekki rætt.
05.05.2014 59. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fleira var ekki gert.
02.05.2014 58. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fleira var ekki gert.
30.04.2014 57. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
28.04.2014 56. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fleira var ekki gert.
09.04.2014 55. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fleira var ekki gert.
02.04.2014 54. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fleira var ekki gert.
31.03.2014 53. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fleira var ekki rætt.
24.03.2014 52. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fleira var ekki rætt.
12.03.2014 51. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Rætt um svar fjármála- og efnahagsráðuneytis um dómkröfulið ráðuneytisins og fjárframlög til rannsóknarnefndar Alþingis um fall sparisjóðanna. Samþykkt af fá fulltrúa Alþingis til fundar til viðræðna um málið. Fundarefni næstu funda rædd.

Fleira var ekki gert og fundi slitið.
05.03.2014 50. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fleira var ekki gert.
04.03.2014 49. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fleira var ekki gert.
03.03.2014 48. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fleira var ekki rætt.
26.02.2014 47. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Oddný G. Harðardóttir leggur fram eftirfarandi bókun: „Undirrituð vill með þessari bókun mótmæla því harðlega að ósk um fund um veikleika á tekjuhlið fjárlaga hafi verið hafnað af formanni nefndarinnar. Fjárlaganefnd á að hafa eftirlit bæði með tekju- og gjaldahlið fjárlaga og því mótmælir undirrituð því að formaður vilji ekki rækja það hlutverk nefndarinnar og hafni fundarbeiðni er það varðar.“

Vigdís Hauksdóttir mótmælir bókuninni og bendir á að hún hafi ekki neitað að ræða tekjuhlið fjárlaga.
24.02.2014 46. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Samþykkt af öllum fundarmönnum að senda bréf til ráðuneyta vegna framkvæmdar fjárlaga 2014.
19.02.2014 45. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fleira var ekki rætt.
17.02.2014 44. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Oddný vakti máls á þörf á því að farið verði yfir þjónustusamninga sem ríkið hefur gert. Bjarkey óskaði eftir að forsvarsmenn Landspítala, heilbrigðisstofnana og framhaldsskóla gerðu grein fyrir rekstri og fjárhagsstöðu þessara stofnana. Nú þegar hefur verið boðaður fundur með fyrrgreindum aðilum. Formaður kynnti að ráðuneytin muni kynna veikleikamat sitt á framkvæmd fjárlaga 2014 á næstunni.

Fleira var ekki rætt.
12.02.2014 43. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fleira var ekki gert.
10.02.2014 42. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fleira var ekki rætt.
29.01.2014 41. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Rætt um fyrirhugaðar heimsóknir nefndarinnar innan lands. Ákveðið að heimsækja Kadeco. Einnig rætt um hvort nefndin ætti að heimsækja sænska þingið í tengslum við frumvarp um opinber fjármál eða hvort bjóða ætti fulltrúum Svía að kynna reynslu sína í þessum efnum hjá fjárlaganefnd.
22.01.2014 40. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fleira var ekki rætt.
15.01.2014 39. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Rætt um starfið framundan, fyrirhugaðar vettvangsferðir og fundi í vinnuhópi nefndarinnar. Vinnuhópurinn mun framvegis funda á þriðjudögum kl. 9:00.
19.12.2013 38. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fleira var ekki gert.
19.12.2013 37. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fleira var ekki gert.
19.12.2013 36. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fleira var ekki rætt og var fundi slitið kl. 10:41.
16.12.2013 35. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Rætt um starfið fram undan.
Fleira var ekki gert.
13.12.2013 34. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Formaður lítur alvarlegum augum að trúnaðarmál fjárlaganefndar hafi birst opinberlega. Formaður mun taka þetta mál upp við forseta þingsins. Nefndarmenn tóku undir með formanni.
11.12.2013 33. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fleira var ekki gert.
11.12.2013 32. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fleira var ekki gert.
11.12.2013 31. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fleira var ekki rætt.
09.12.2013 30. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fleira var ekki gert.
09.12.2013 29. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fleira var ekki gert.
07.12.2013 28. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fleira var ekki rætt.
06.12.2013 27. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fleiri mál voru ekki rædd.
05.12.2013 26. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Lagt fram til kynningar í fjárlaganefnd minnisblað velferðarráðuneytisins dagsett 3. desember 2013 um endurnýjun á tækjabúnaði Landspítalans og Sjúkrahússins á Akureyri.
Fleira var ekki gert.
04.12.2013 25. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Oddný G. Harðardóttir óskaði eftir afriti af þeim tillögum ráðuneytanna sem ekki voru samþykktar í frumvarp til fjáraukalaga fyrir árið 2013. Fleira var ekki gert.
03.12.2013 24. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Rætt var um starfið fram undan. Fleira var ekki gert.
02.12.2013 23. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Varaformaður upplýsti nefndina um fyrirhugaða fjárbeiðni vegna 100 ára kosningaafmælis kvenna. Málið verður kynnt nánar á fundi nefndarinnar á morgun.
27.11.2013 22. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fulltrúi Samfylkingarinnar óskar eftir að bókað verði að næsti fundur fjárlaganefndar verði mánudaginn 2. desember nk. kl. 9.00.
26.11.2013 21. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fleiri mál voru ekki rædd.
25.11.2013 20. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fleiri mál voru ekki rædd.
22.11.2013 19. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Rætt var um þá vinnu sem fram undan er við umsögn um þingsályktunartillögu um byggingu nýs Landsspítala sem velferðarnefnd hefur vísað til fjárlaganefndar. Bent var á að þessu máli, sem lýtur að fjármögnun á nýjum spítala, er vísað til velferðarnefndar en ekki fjárlaganefndar. Fram kom að þessi ábending geti átt við um fleiri þingmál.
20.11.2013 18. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Oddný G. Harðardóttir gerði alvarlega athugasemd við að frumvarp til fjáraukalaga fyrir árið 2013 hefði ekki enn verið lagt fram. Bjarkey Gunnarsdóttir tók undir athugasemdina. Rætt var um vinnuna sem fram undan er.
19.11.2013 17. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fleiri mál voru ekki rædd.
15.11.2013 16. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fleiri mál voru ekki rædd.
13.11.2013 15. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fleira var ekki gert.
13.11.2013 14. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fleira var ekki gert.
11.11.2013 13. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Samþykkt var að fjárlaganefnd myndi flytja frumvarp um afnám markaðra tekna. Fleiri mál voru ekki rædd.
06.11.2013 12. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Rætt var um frumvarp um markaðar tekjur ríkissjóðs og vinnuna við það.
04.11.2013 11. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fleiri mál voru ekki rædd.
01.11.2013 10. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Oddný G. Harðardóttir vísaði til tölvupósts til formanns nefndarinnar frá því í gær þar sem óskað var eftir fundi vegna viðtals við formann fjárlaganefndar opinberlega um ríkisábyrgð á Íbúðalánasjóði.
Formaður vísaði til þess að sá fundur yrði haldinn 11. nóvember nk. og hann hefði þegar verið bókaður og boðaður. Til fundarins munu koma fjármála- og efnahagsráðherra, félagsmálaráðherra og forstjóri Fjármálaeftirlitsins.

Oddný, Bjarkey og Brynhildur leggja fram eftirfarandi bókun:

„Með tölvupósti 31. október sl. óskuðu undirritaðar eftir að fundi í fjárlaganefnd um málefni Íbúðalánasjóðs yrði flýtt og haldinn eigi síðar en mánudaginn 4. nóvember. Tilefnið var yfirlýsing formanns fjárlaganefndar um ríkisábyrgð á Íbúðalánasjóði á fréttastofunni Bloomberg. Formaður fjárlaganefndar hafnaði beiðninni. Samkvæmt 15. gr. þingskapalaga er formanni fjárlaganefndar skylt að boða til fundar ef ósk um það berst frá a.m.k. fjórðungi þingmanna og formaður skal, samkvæmt lögunum, gefa viðhlítandi skýringar ef dregst umfram þrjá virka daga að halda fund í nefndinni. Framkoma formanns fjárlaganefndar er brot á þingskapalögum og við það verður ekki unað.“
30.10.2013 9. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fleira var ekki gert.
29.10.2013 8. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Oddný G. Harðardóttir, Bjarkey Gunnarsdóttir og Brynhildur Pétursdóttir lögðu fram eftirfarandi skriflega beiðni:
„Undirritaðir nefndarmenn í fjárlaganefnd óska eftir því að fá tillögur hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar til skoðunar og umfjöllunar. Auk þess er óskað eftir fundargerðum funda hagræðingarhópsins sem haldnir hafa verið til dagsins í dag. Þá er óskað eftir afriti af greinargerðum, skýrslum og öðrum gögnum sem lagðar hafa verið fram á fundunum.“

Formaður mun rita forsætisráðuneytinu bréf og óska eftir þessum upplýsingum, sbr. 51. gr. laga nr. 55/1991.
28.10.2013 7. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fleiri mál voru ekki rædd.
18.10.2013 6. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Nefndarmenn ræddu alvarlega fjárhagsstöðu Íbúðalánasjóðs og ákveðið var að kalla til fleiri aðila á fund nefndarinnar til að ræða framtíðarskipan sjóðsins.
16.10.2013 5. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Lagt fram og kynnt minnisblað um markaðar tekjur sem unnið var í vinnuhópi fjárlaganefndar. Fleira var ekki gert.
14.10.2013 4. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fleiri mál voru ekki rædd.
11.10.2013 3. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fleiri mál voru ekki rædd.
09.10.2013 2. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fleiri mál voru ekki rædd.
04.10.2013 1. fundur fjárlaganefndar Önnur mál
Fleiri mál voru ekki rædd.