Loftslagsmál
(1810242)
Umhverfis- og samgöngunefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
30.11.2018 | 21. fundur umhverfis- og samgöngunefndar | Loftslagsmál Á fund nefndanna mættu Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra auk Jörundar Valtýssonar, Jóns Erlings Jónassonar, Jóhönnu Bryndísar Bjarnadóttur, Bergþórs Magnússonar og Hrundar Hafsteinsdóttur frá utanríkisráðuneytinu, Huga Ólafssonar, Sigríðar Víðis Jónsdóttur frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu og Unnar Brár Konráðsdóttur fulltrúa ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum. Gerðu gestir grein fyrir stöðu viðræðna Íslands og Noregs við ESB um loftslagsmál og svöruðu spurningum nefndarmanna. |
30.11.2018 | 10. fundur utanríkismálanefndar | Loftslagsmál Á fund nefndanna mættu Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra auk Jörundar Valtýssonar, Jóns Erlings Jónassonar, Jóhönnu Bryndísar Bjarnadóttur, Bergþórs Magnússonar og Hrundar Hafsteinsdóttur frá utanríkisráðuneytinu, Huga Ólafssonar, Sigríðar Víðis Jónsdóttur frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu og Unnar Brár Konráðsdóttur fulltrúa ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum. Gerðu gestir grein fyrir stöðu viðræðna Íslands og Noregs við ESB um loftslagsmál og svöruðu spurningum nefndarmanna. Fundurinn var haldinn sameiginlega með umhverfis- og samgöngunefnd. |
01.11.2018 | 11. fundur umhverfis- og samgöngunefndar | Loftslagsmál Á fund nefndarinnar mættu Halldór Björnsson frá vísindanefnd um loftslagsmál, Árni Snorrason frá Veðurstofu Íslands, Hugi Ólafsson frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu og Kristín Linda Árnadóttir, Ragnhildur Finnbjörnsdóttir og Nicole S. Keller frá Umhverfisstofnun. Halldór kynnti skýrslu vísindanefndar um loftslagsbreytingar. Kristín Linda kynnti helstu niðurstöður úr losunarbókhaldi Íslands 1990-2016. Þá svöruðu gestir spurningum nefndarmanna. |