Íslandspóstur ohf.
(1810249)
Umhverfis- og samgöngunefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
26.09.2019 | 5. fundur umhverfis- og samgöngunefndar | Íslandspóstur ohf. Á fund nefndarinnar mættu Ólafur Freyr Þorsteinsson og Páll Gunnar Pálsson frá Samkeppniseftirlitinu og Skúli Eggert Þórðarson og Jón Loftur Björnsson frá Ríkisendurskoðun og svöruðu spurningum nefndarmanna. |
02.09.2019 | 86. fundur umhverfis- og samgöngunefndar | Íslandspóstur ohf. Á fund nefndarinnar kom Breki Karlsson frá Neytendasamtökunum og gerði grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna. Á fund nefndarinnar komu einnig Hrafnkell V. Gíslason forstjóri og Friðrik Pétursson frá Póst- og fjarskiptastofnun, Auður Björk Guðmundsdóttir, Bjarni Jónsson og Birgir Jónsson frá Íslandspósti ohf. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna. |
30.11.2018 | 22. fundur umhverfis- og samgöngunefndar | Íslandspóstur Að beiðni nefndarinnar kom Willum Þór Þórsson formaður fjárlaganefndar á fund og ræddi málið við nefndarmenn. |
02.11.2018 | 12. fundur umhverfis- og samgöngunefndar | Íslandspóstur Á fund nefndarinnar mættu Ingimundur Sigurpálsson og Bjarni Jónsson. Fóru þeir yfir stöðu póstþjónustunnar og Íslandspósts hf. og svöruðu spurningum nefndarmanna. |