Starfið framundan
Önnur erindi (1902034)
Umhverfis- og samgöngunefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
05.05.2020 | 53. fundur umhverfis- og samgöngunefndar | Starfið framundan Nefndin ræddi starfið framundan. |
08.10.2019 | 6. fundur umhverfis- og samgöngunefndar | Starfið framundan Nefndin ræddi starfið framundan. |
19.02.2019 | 40. fundur umhverfis- og samgöngunefndar | Starfið framundan Nefndin ræddi starfið framundan og þörf á aukafundum. Samþykkt var sú breyting á starfsáætlun nefndarinnar að fundað verði á þriðjudögum kl. 9-12. Þá var samþykkt að funda föstudaginn 1. mars kl. 08:30-10. Nefndin heimilaði Birni Leví Gunnarssyni, áheyrnarfulltrúa, að leggja fram eftirfarandi bókun: Lenging fundatíma og fjölgun funda hefur gríðarlega mismikil áhrif á nefndarmenn og önnur þingstörf þeirra. Þörfin fyrir lengingu nefndarfunda og fjölgun funda fellur að mínu mati algerlega á skipulagsleysi nefndarstarfa af hálfu fyrri stjórnar nefndarinnar og skipulagsleysi þess hvernig stjórnarmeirihlutinn afgreiddi samgönguáætlun. |
07.02.2019 | 39. fundur umhverfis- og samgöngunefndar | Starfið framundan Formaður gerði grein fyrir nauðsyn aukafunda og lengri funda nefndarinnar þar sem mörg verkefni biðu. Helga Vala Helgadóttir lagði fram eftirfarandi bókun: Minnt er á að ekki er hægt að halda aukafundi nema með samþykki allra nefndarmanna og þarf að bera upp hvern og einn fund til samþykktar. Þannig sé ekki hægt að líta svo á hér sé veitt almennt samþykki fyrir aukafundum eða lengri fundum. Hanna Katrín Friðriksson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Björn Leví Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi, tóku undir bókunina. |