Breytingar á vegalögum
Frumkvæðismál (2012049)
Umhverfis- og samgöngunefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
15.12.2020 | 23. fundur umhverfis- og samgöngunefndar | Breytingar á vegalögum Nefndin ákvað að flytja frumvarp til laga um breytingu á vegalögum, nr. 80/2007. |
10.12.2020 | 22. fundur umhverfis- og samgöngunefndar | Breytingar á vegalögum Kl. 08:49 - Á fund nefndarinnar mættu Sigurbergur Björnsson og Ólafur Kr. Hjörleifsson frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu og Bergþóra Þorkelsdóttir, Stefán Erlendsson og Magnús V. Jóhannsson frá Vegagerðinni. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna. Kl. 09:05 - Á fund nefndarinnar mættu Páll Björgvin Guðmundsson, Birgir B. Sigurjónsson og Haraldur Sverrisson frá Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Guðjón Bragason frá Samtökum íslenskra sveitarfélaga. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna. Kl. 09:21 - Nefndin fjallaði um málið. |
08.12.2020 | 20. fundur umhverfis- og samgöngunefndar | Breytingar á vegalögum Nefndin fjallaði um málið. |