Breytingar á lögum um loftferðir 60/1998 (COVID -19 )
Frumkvæðismál (2103167)
Umhverfis- og samgöngunefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
21.05.2021 | 67. fundur umhverfis- og samgöngunefndar | Framsögumaður málsins, Ari Trausti Guðmundsson, kynnti drög að breytingartillögu og ræddi nefndin málið. Tillaga um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt. Að breytingartillögu meiri hluta standa Ari Trausti Guðmundsson, Guðjón S. Brjánsson, Hanna Katrín Friðriksson, Jón Gunnarsson, Kolbeinn Óttarsson Proppé og Líneik Anna Sævarsdóttir. |
19.05.2021 | 65. fundur umhverfis- og samgöngunefndar | Á fund nefndarinnar mættu Sigurður Kári Árnason frá heilbrigðisráðuneytinu og Ástríður Scheving Thorsteinsson frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu og svöruðu spurningum nefndarmanna. Eftir að gestir höfðu vikið af fundi ræddi nefndin málið. |
14.05.2021 | 63. fundur umhverfis- og samgöngunefndar | Framsögumaður málsins, Ari Trausti Guðmundsson, fór yfir drög að framhaldsnefndaráliti. Tillaga um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt af öllum viðstöddum nefndarmönnum. Að framhaldsnefndaráliti meiri hluta standa Ari Trausti Guðmundsson, Guðjón S. Brjánsson, Hanna Katrín Friðriksson, Jón Gunnarsson, Líneik Anna Sævarsdóttir, Kolbeinn Óttarsson Proppé. Vilhjálmur Árnason var fjarverandi við afgreiðslu málsins og skrifar undir álitið með heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis. Andrés Ingi Jónsson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, lýsti sig samþykkan álitinu. |
29.04.2021 | 56. fundur umhverfis- og samgöngunefndar | Nefndin ræddi málið. Tillaga um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt af BergÓ, JónG, KÓP, VilÁ, LínS, KGH, ATG og GBr. HKF sat hjá. Að nefndaráliti meiri hluta með breytingartillögu standa Ari Trausti Guðmundsson, Jón Gunnarsson, Vilhjálmur Árnason, Kolbeinn Óttarsson Proppé og Líneik Anna Sævarsdóttir. |
28.04.2021 | 55. fundur umhverfis- og samgöngunefndar | Nefndin ræddi málið. |
27.04.2021 | 54. fundur umhverfis- og samgöngunefndar | Á fund nefndarinnar mætti Ragnhildur Helgadóttir, prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Gerði hún grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna. |
20.04.2021 | 53. fundur umhverfis- og samgöngunefndar | Framsögumaður málsins, Ari Trausti Guðmundsson, kynnti drög að nefndaráliti. Nefndin ræddi málið. |
15.04.2021 | 52. fundur umhverfis- og samgöngunefndar | Á fund nefndarinnar mætti Davíð Þór Björgvinsson prófessor við lagadeild Háskóla Íslands. Gerði hann grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna. |
13.04.2021 | 51. fundur umhverfis- og samgöngunefndar | Nefndin fjallaði um málið. |
25.03.2021 | 50. fundur umhverfis- og samgöngunefndar | Nefndin ræddi málið. Hlé á fundi frá kl. 10:54 til 11:00. |
24.03.2021 | 49. fundur umhverfis- og samgöngunefndar | Á fund nefndarinnar mætti Elín Ósk Helgadóttir aðjúnkt við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Gerði hún grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna. |
22.03.2021 | 48. fundur umhverfis- og samgöngunefndar | Á fund nefndarinnar mættu Ari Guðjónsson, Birna Ósk Einarsdóttir og Jens Þórðarson frá Icelandair. Gerðu þau grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna. Þá komu á fund nefndarinnar Ástríður Scheving Thorsteinsson og Ólafur Kr. Hjörleifsson frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, Sigurður Kári Árnason frá heilbrigðisráðuneytinu og Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir. Gerðu þau grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna. |
18.03.2021 | 47. fundur umhverfis- og samgöngunefndar | Á fund nefndarinnar mættu Ástríður Scheving Thorsteinsson frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu og Sigurður Kári Árnason frá heilbrigðisráðuneytinu. Reifuðu þau málið og svöruðu spurningum nefndarmanna. Nefndin samþykkti að flytja frumvarp til laga um breytingu á lögum um loftferðir, nr. 60/1998, varðandi skyldur flugrekenda vegna COVID-19. |